Um Færð og Veður og gögnin
Færð og Veður er óháð app gert á Íslandi af Meðalheimi ehf. Það er ekki rekið af Vegagerðinni né Veðurstofu Íslands.
Færð, lokanir, veðurstöðvar og vefmyndavélar koma úr opnum gögnum Vegagerðarinnar og veðurviðvaranir frá Veðurstofu Íslands. Við sækjum þær um eigin netþjóna og athugum með ný gögn á 5 mínútna fresti.
Við hvern veg stendur hvenær Vegagerðin mat færðina. Ef við náum ekki í gögnin segjum við frá því og sýnum aldrei veg sem greiðfæran vegna þess að gögn vantar.
Engin ábyrgð er tekin á réttmæti upplýsinganna. Frekari upplýsingar fást í síma 1777. Í neyð hringið í 112.
vegagerdin.is · vedur.is · skilmálum Vegagerðarinnar · medalheimur@medalheimur.is
Meðalheimur ehf. · Kt. 430221-0190
Hvað þýða litirnir?
Færðarheiti Vegagerðarinnar, í sömu litum og í appinu.
- Greiðfært
- Hálkublettir
- Hált
- Flughált
- Krap
- Snjóþekja
- Þæfingur
- Þungfært
- Ófært vegna veðurs
- Lokað
- Fært fjallabílum
- Án vetrarþjónustu
- Færð óþekkt
- Engin gögn
Ókeypis app
Hér sérðu færðina núna. Appið lætur þig vita þegar hún breytist.
Færð og Veður er með sama kort, vefmyndavélar og veður í símanum.
- Fylgstu með vegunum þínum. Fáðu tilkynningu þegar færð breytist eða vegi er lokað. Fylgir áskrift.
- Veðurviðvaranir frá Veðurstofunni á kortinu, og sem tilkynningar með áskrift.
- Allt vegakerfið með vefmyndavélum og veðurstöðvum.
- Enginn aðgangur. Sæktu og opnaðu.
Í tölvunni? Skannaðu til að sækja í símann